09 Sep Viðmælendagreining RÚV
Skráning á kynjahlutfalli viðmælenda er birt til samræmis við stefnu RÚV í jafnréttismálum. Skráðir eru viðmælendur í fréttum og fréttatengdum þáttum og í reglubundnum innlendum þáttum í útvarpi og sjónvarpi. Talning sem þessi gefur ekki heildarmynd af því hver birtingarmynd karla og kvenna er í dagskránni en hún er mikilvægur liður í því að mæla hver staðan og þróunin eru. Hlutfall kynjanna í dagskrá RÚV á fyrri helmingi 2020, utan frétta, var alveg jafnt, 50% karlar og 50% konur. Með kynjajafnvægi í dagskrá sker RÚV sig frá flestum miðlum hérlendis og erlendis. Séu eingöngu fréttatímar og fréttatengdir þættir teknir saman er hlutfall viðmælenda 64% karlar og 36% konur. Það skýrist af hærra hlutfalli karla í leiðandi stöðum í stjórnmálum og samfélaginu, sem fluttar eru fréttir af. Tölurnar hafa þróast í átt til jafnvægis frá því að mælingar hófust.
Sorry, the comment form is closed at this time.