Viðhorf almennings til RÚV ohf. aldrei jákvæðara

01 Sep Viðhorf almennings til RÚV ohf. aldrei jákvæðara

Ný viðhorfskönnun Gallup sýnir að þjóðin hefur ekki verið jákvæðari  gagnvart RÚV og þjónustu þess frá því RÚV ohf. var stofnað árið 2007. Tæp 73% aðspurðra eru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart Ríkisútvarpinu. Könnunin staðfestir mikla og aukna ánægju með flesta þætti starfsemi RÚV. Flestir telja Ríkisútvarpið mikilvægasta fjölmiðil þjóðarinnar eða 68% svarenda.  Þá leita fleiri að fréttum og fréttatengdu efni í miðlum RÚV en annarsstaðar og sama gildir um menningarefni.

http://www.ruv.is/i-umraedunni/vidhorf-almennings-til-ruv-aldrei-jakvaedara

No Comments

Post A Comment