18 Nov Vera Illugadóttir hlaut viðurkenningu á degi íslenskrar tungu
Vera Illugadóttir, umsjónarmaður Í ljósi sögunnar á Rás 1, sem er jafnframt vinsælasta hlaðvarp landsins, hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Í umsögn dómnefndar segir að Í ljósi sögunnar höfði öðrum fremur til fólks á öllum aldri og með mjög mismunandi áhugasvið. „Með grípandi framsetningu söguefnis hverju sinni nær Vera eyrum hlustenda vítt og breitt um samfélagið. Hún segir sögur sínar á frjóu og fallegu máli og miðlar fróðleik sínum á tilgerðarlausan en áhrifaríkan hátt.“
Sorry, the comment form is closed at this time.