16 Oct Tökur hófust á Ófærð 2
Tökur á Ófærð 2 hófust á Siglufirði um miðjan október, en hún verður á dagskrá RÚV haustið 2018. „Þetta er eins og að fá fjölskylduna saman aftur,“ segir Ólafur Darri Ólafsson leikari og Sigurjón Kjartansson handritshöfundur lofaði nóg af hörmungum, dauða og skelfingu. Fyrri þáttaröð Ófærðar naut gífurlegra vinsælda, innanlands sem utan. Þættirnir voru meðal annars sýndir í Skandinavíu, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi, við góðar undirtektir.
No Comments