Þríeykið er manneskja ársins á Rás 2

31 Dec Þríeykið er manneskja ársins á Rás 2

Þríeykið, Alma D. Möller landlæknir, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, eru manneskjur ársins 2020 á Rás 2. Víðir Reynisson segir frábært að fá viðurkenningu fyrir þá vinnu sem teymið hefur unnið allt árið. Hann segir ljóst að verkefnið sé ekki aðeins í höndum þeirra þriggja. „Þetta er gríðarlega stórt verkefni sem þurfti alla til að taka þátt í,“ segir hann. Því taki þau við viðurkenningunni fyrir hönd stórs hóps.

https://www.ruv.is/frett/2021/01/03/thrieykid-er-manneskja-arsins-a-ras-2

 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.