23 Feb Þórhildur, Lísa, Kristín og Viktoría fá Fjölmiðlaverðlaun götunnar
Þann 23. febrúar voru Fjölmiðlaverðlaun götunnar afhent við formlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni, og var blaða-, frétta- og dagskrárgerðarfólki, alls ellefu manns, veitt viðurkenning fyrir framlög sín til málefnalegrar umfjöllunar um fátækt á Íslandi á árinu 2016. Þeirra á meðal voru Þórhildur Ólafsdóttir (Rás 1), Lísa Pálsdóttir (Rás 1), Kristín Sigurðardóttir (fréttastofa RÚV) og Viktoría Hermannsdóttir (fréttastofa RÚV).
No Comments