Þáttaröðin Með okkar augum hlýtur mannréttindaverðlaun

15 May Þáttaröðin Með okkar augum hlýtur mannréttindaverðlaun

Þáttaröðin Með okkar augum hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Þau eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Þáttarstjórnendur voru verðlaunuð fyrir að stuðla að vitundarvakningu um stöðu fólks með þroskahömlun, getu þess, skoðanir og langanir. Þættirnir hafa verið á dagskrá Ríkisútvarpsins síðastliðin sex ár og áætlar hópurinn að ráðast í framleiðslu á sjöundu þáttaröðinni innan tíðar.

http://www.ruv.is/i-umraedunni/thattarodin-med-okkar-augum-hlytur-mannrettindaverdlaun

No Comments

Post A Comment