Þátttaka RÚV í Ísrael staðfest

13 Sep Þátttaka RÚV í Ísrael staðfest

RÚV tók ákvörðun að taka enn á ný þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, sem verður næst haldin í borginni Tel Aviv í Ísrael í maí 2019. Hvatning hafði borist stofnuninni um að sniðganga keppnina að þessu sinni vegna ástandsins á Gaza og átaka milli Ísraela og Palestínumanna. RÚV fór vandlega yfir málið og ákvað að ganga í takt við aðra almannaþjónustumiðla á Norðurlöndum. Vó þar þyngst að ekki er um pólitískan viðburð að ræða, heldur samkomu ólíkra þjóða sem allt frá stofnun hefur haft að megintilgangi og leiðarljósi að breiða út boðskap sameiningar- og friðar.
http://www.ruv.is/i-umraedunni/thatttaka-i-eurovision-2019-i-tel-aviv

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.