04 Apr Sjónvarpsmyndin Sóttkví frumsýnd
Sjónvarpsmyndin Sóttkví var frumsýnd á páskadag á RÚV. Reynir Lyngdal leikstýrir eftir handriti Birnu Önnu Björnsdóttur og Auðar Jónsdóttur. Elma Lísa Gunnarsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Hilmar Guðjónsson fara með helstu hlutverk. Sóttkví fjallar um þrjár vinkonur sem þurfa allar að fara í sóttkví í fyrstu bylgju Covid-19. Þær taka upp á því að veita hver annarri félagsskap og stuðning með reglulegum fjarfundum. Í einangruninni og álaginu magnast upp flóknar aðstæður úr lífi vinkvennanna, oft með skoplegum hætti.
Sorry, the comment form is closed at this time.