12 Oct Ágóði af sölu á byggingarrétti nýttur til niðurgreiðslu skulda
Mikilvægur áfangi náðist í fjárhagslegri endurskipulagningu Ríkisútvarpsins þegar skrifað var undir kaupsamning RÚV og einkahlutafélags með ábyrgð Skuggabyggðar ehf. um byggingarrétt á lóðinni við Efstaleiti 1. Unnið hefur verið að sölunni frá sumrinu 2014. Ávinningurinn af sölunni í heild er áætlaður a.m.k. 1,5 milljarðar króna en hann ræðst af endanlega staðfestu deiliskipulagi. Nú er unnið að deiliskipulagi lóðar við Efstaleiti á grundvelli vinningstillögu Arkþings um skipulag svæðisins. Til stendur að þar verði blönduð byggð.
No Comments