RÚV tekur þátt í að gera íslensku gjaldgenga í stafrænum heimi

22 Feb RÚV tekur þátt í að gera íslensku gjaldgenga í stafrænum heimi

Íslenskan stendur frammi fyrir ótal mörgum áskorunum á tímum stafrænna samskipta og snjalltækja. Að undanförnu hafa ný snjallforrit og verkefni litið dagsins ljós með það markmið að gera íslensku gjaldgenga í hinum stafræna heimi.
Á meðal þeirra verkefna má nefna talgervilsappið Emblu, Almannaróm og Brodda. RÚV hefur tekið þátt í þjónustu fyrir þau tvö síðarnefndu. Með Brodda geta notendur hlustað á og vafrað um fréttir og fréttatengda þætti frá RÚV með raddskipunum á íslensku. Broddi skilur nefnilega nokkrar einfaldar íslenskar setningar sem má nota til að tala við forritið.
No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.