RÚV fær fjórar tilnefningar til Blaðamannaverðlauna

19 Mar RÚV fær fjórar tilnefningar til Blaðamannaverðlauna

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands voru tilkynntar þann 19. mars. RÚV fékk fjórar tilnefningar til verðlauna í ár. Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson fengu tilnefningu fyrir fjölbreytta, aðgengilega og upplýsandi umfjöllun af erlendum vettvangi sem vakið hefur athygli í þáttunum Heimskviðum. Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan og Stefán Drengsson fyrir fréttaskýringarþátt um afdrif tveggja gámaflutningaskipa sem Eimskip seldi í gegnum millilið til niðurrifs í Indlandi þvert á evrópsk lög. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir fyrir umfjöllun um atvinnuleysi þar sem tekið var á sálrænum, félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum þess í skugga heimsfaraldurs COVID-19. Þórhildur Þorkelsdóttir fékk tilnefningu fyrir vönduð fréttatengd viðtöl þar sem sjónum er beint að einstaklingum í erfiðum aðstæðum.

https://www.ruv.is/frett/2021/03/20/tilnefnd-til-bladamannaverdlaunanna

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.