19 Aug Öflugra Kastljós og menningin færist á besta stað í dagskránni
Í lok ágúst hóf Kastljós göngu sína á ný í ritstjórn Þóru Arnórsdóttur. Fréttatengd viðtöl og fréttaskýringar eru áfram hryggjarstykki þáttarins en við bætist föst menningarumfjöllun samhliða því sem útsendingartími lengist. Þessi breyting er liður í að efla umfjöllun RÚV um menningu með því að færa hana á besta stað í dagskránni, ásamt því að efla Kastljós og auka fjölbreytni þáttarins. Við þetta jókst menningarumfjöllun RÚV mikið í mínútum talið auk þess sem áhorf á menningarefni jókst umtalsvert enda á betri tíma en áður.
No Comments