18 Jun Metáhorf á leik Íslands og Argentínu á HM
Áhorfið á leik Íslands og Argentínu, 63% meðaláhorf, er það mesta sem mælst hefur á íþróttaviðburð. Eldra metið var 58,8% áhorf á leik Íslands og Englands á EM í fótbolta 2016 en sá leikur var sýndur í beinni samtímis á RÚV og í Sjónvarpi Símans. Hlutdeild RÚV á meðan á leik stóð var 99.6% – sem í stuttu máli sýnir að nánast ALLIR sem voru á annað borð með kveikt á sjónvarpi á þessum tíma voru að horfa á leikinn.
http://www.ruv.is/i-umraedunni/metahorf-a-leik-islands-og-argentinu-a-hm-2018
Sorry, the comment form is closed at this time.