06 Jan Menningarviðurkenningar RÚV afhentar
Menningarviðurkenningar RÚV voru veittar með nýju sniði á þrettándanum við hátíðlega athöfn í Efstaleiti. Veittar voru viðurkenningar úr Rithöfundasjóði, Tónskáldasjóði, Leiklistarsjóði Þorsteins Ö. Stephensen. Auk þess var tilkynnt um Orð ársins og Krókinn á Rás 2. Auður Jónsdóttir hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs. Fimm hlutu styrki úr Leiklistarsjóði Þorsteins Ö. Stephensen við Ríkisútvarpið, þau Heiðar Sumarliðason, Kristín Eiríksdóttir, Salka Guðmundsdóttir, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og Halldór Halldórsson. Hljómsveitin Agent Fresco hlaut Krókinn 2015 og Fössari var valið Orð ársins 2015.
http://ruv.is/i-umraedunni/menningarvidurkenningar-ruv-afhentar
No Comments