31 Dec Maður ársins á Rás 2: Björgunarsveitirnar
Björgunarsveitir slysavarnarfélagsins Landsbjargar urðu hlutskarpastar í valinu á manni ársins á Rás 2. Björgunarsveitirnar stóðu í ströngu um jólin þegar þær komu vegfarendum til bjargar í vonskuveðri sem gekk yfir landið um hátíðirnar. Tíu voru tilnefndir sem maður ársins hjá Rás 2. Þetta voru Birgitta Jónsdóttir, Þórunn Ólafsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðni Th. Jóhannesson, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, Jóhanna Kristjónsdóttir, Sema Erla Serdar, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir og björgunarsveitirnar.
http://www.ruv.is/frett/bjorgunarsveitirnar-madur-arsins-a-ras-2
No Comments