08 May Jafnt hlutfall í dagskrá RÚV á fyrsta ársfjórðungi 2020
Hlutfall kynjanna í dagskrá RÚV á fyrsta ársfjórðungi 2020, utan frétta, var jafnt, 50% karlar og 50% konur. Með kynjajafnvægi í dagskrá sker RÚV sig frá flestum miðlum hérlendis og erlendis. Séu eingöngu fréttatímar og fréttatengdir þættir teknir saman er hlutfall viðmælenda 65% karlar og 35% konur. Það skýrist af hærra hlutfalli karla í leiðandi stöðum í stjórnmálum og samfélaginu, sem fluttar eru fréttir af.
https://www.ruv.is/i-umraedunni/kynjahlutfall-vidmaelenda-ruv-2020
Sorry, the comment form is closed at this time.