04 Apr Hugmyndadagar RÚV
Hugmyndasmiðum, höfundum, framleiðendum og öðrum gafst kostur á að kynna hugmyndir og tillögur að dagskrárefni fyrir dagskrárstjórum RÚV dagana 4. og 5. apríl. Hugmyndadagar fara alla jafna fram tvisvar á ári og voru fyrst haldnir í október 2017.
Alls hafa meira en 2400 hugmyndir borist Hugmyndadögum frá upphafi, um 650 hópar og einstaklingar verið boðaðir á fund í Efstaleiti eða á Teams til að kynna tillögur sínar nánar og um 130 verkefni hafa þegar orðið að veruleika, eru í þróun eða eru til frekari athugunar. Markmiðið er að halda áfram að auka á fjölbreytni í dagskrárframboði RÚV, opna hugmyndaþróunina og styrkja tengsl RÚV og sjálfstæðra framleiðenda.
Sorry, the comment form is closed at this time.