13 Aug Höfundar Áramótaskaupsins opinberaðir
Fjölbreyttur hópur skrifar og stýrir Áramótaskaupinu í ár, blanda af reynsluboltum sem áður hafa komið að gerð Áramótaskaupa og nýliða sem eru í hópi mest spennandi grínhöfunda landsins sem koma nú í fyrsta sinn að gerð skaupsins. Þetta eru þau Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Dóra Jóhannsdóttir, Sævar Sigurgeirsson, Meistari Jakob Birgisson, Reynir Lyngdal, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Hugleikur Dagsson. Tónlistin í Skaupinu verður í umsjá Árna plús einn úr FMBelfast og tónlistarmannsins Prins Pólós. Framleiðsla verður í höndum Republik og leikstjóri verður Reynir Lyngdal.
Sorry, the comment form is closed at this time.