Gott jafnvægi milli kynjanna í dagskrá RÚV árið 2019

07 Feb Gott jafnvægi milli kynjanna í dagskrá RÚV árið 2019

Skráning á kynjahlutfalli viðmælenda er birt opinberlega á þriggja mánaða fresti til samræmis við stefnu RÚV í jafnréttismálum. Tölur fyrir allt árið 2019 voru birtar þann 7. febrúar 2020. Skráðir eru viðmælendur í fréttum og fréttatengdum þáttum og í reglubundnum innlendum þáttum í útvarpi og sjónvarpi. Talning sem þessi gefur ekki heildarmynd af því hver birtingarmynd karla og kvenna er í dagskránni en hún er mikilvægur liður í því að mæla hver staðan og þróunin eru. RÚV hefur markvisst staðið fyrir ýmsum aðgerðum til að hvetja konur til þátttöku á sviðum þar sem þær hafa ekki verið jafnar körlum m.a. námskeiði í íþróttafréttamennsku fyrir konur, námskeiðum í spurningatækni fyrir Gettu betur og kynjakvóta í liðum í Gettu betur. Þessar aðgerðir hafa borið góðan árangur. Hlutfall kynjanna í dagskrá RÚV árið 2019, utan frétta, var alveg jafnt, 50% karlar og 50% konur. Með kynjajafnvægi í dagskrá sker RÚV sig frá flestum miðlum hérlendis og erlendis. Séu eingöngu fréttatímar og fréttatengdir þættir teknir saman er hlutfall viðmælenda 63% karlar og 37% konur. Það skýrist af hærra hlutfalli karla í leiðandi stöðum í stjórnmálum og samfélaginu, sem fluttar eru fréttir af.  Tölurnar hafa þróast í átt til jafnvægis frá því að mælingar hófust.
No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.