01 Mar Engin söngvakeppni haldin – Daði Freyr valinn til að keppa fyrir Íslands hönd
Engin sönkvakeppni var haldin árið 2021 vegna kórónuveirufaraldursins. Ríkisútvarpið tók þá ákvörðun að velja Daða Frey og gagnamagnið til að taka þátt í Eurovision-keppninni í Rotterdam árið 2021. Daði vann Söngvakeppnina hér heima með laginu Think About Things árið 2020 og fór myndbandið við lagið og ekki síður danssporin sem eldur í sinu um netheima. Daða var af mörgum talinn mjög sigurstranglegur fyrir Eurovision-keppnina 2020 sem síðan var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.
https://www.ruv.is/frett/2020/10/23/engin-songvakeppni-dadi-keppir-fyrir-hond-islands
Sorry, the comment form is closed at this time.