23 Dec Betri þjónusta við áhorfendur – lotugláp á RÚV.is
Um jólin var ný þjónusta kynnt. Þá var í fyrsta sinn hægt að horfa á sérvaldar þáttaraðir í heild á RÚV.is undir yfirskriftinni Jólaseríur RÚV. Tvær fyrstu þáttaraðir norsku þáttanna SKAM voru settar á vefinn og aðsóknin að þeim gaf skýrt til kynna að áhugi væri bæði á þáttunum og lotuglápi því að ríflega 36 þúsund manns sóttu í jólaseríurnar á meðan þær voru í boði.
No Comments