Baltasar Kormákur, RVK Studios og RÚV gera þættina Sjálfstætt fólk

16 May Baltasar Kormákur, RVK Studios og RÚV gera þættina Sjálfstætt fólk

RÚV og RVK Studios, framleiðslufyrirtæki Baltasars Kormáks, gerðu með sér samkomulag um þróun og undirbúning sex til átta sjónvarpsþátta og kvikmyndar sem byggja á skáldverki Halldórs Laxness, Sjálfstæðu fólki. Um er að ræða eina umfangsmestu framleiðslu í íslenskri kvikmynda- og sjónvarpssögu. Gert er ráð fyrir að tökur hefjist síðla árs 2018. Baltasar Kormákur leikstýrir og skrifar handrit í samstarfi við fleiri höfunda.

http://www.ruv.is/i-umraedunni/baltasar-kormakur-rvk-studios-og-ruv-gera-sjonvarpsthattarodina-sjalfstaett-folk

http://www.ruv.is/i-umraedunni/ahugi-erlendis-a-framleidslu-thattaradarinnar-sjalfstaett-folk

 

No Comments

Post A Comment