Kjarninn í tilvist RÚV og tilgangur – að vekja fólk til umhugsunar, virkja til athafna og efla til sköpunar og aðgerða
Lýsir þeirri stöðu sem RÚV stefnir að, þeim áhrifum sem það vill hafa – að hafa hlutverki að gegna svo hér á landi megi búa vakandi og víðsýn þjóð
Leggja grunn að menningu RÚV og einkenna vinnubrögð, viðhorf og framkomu starfsfólks – heilindi, gæði, hugrekki og samvinna
Leiðarljós RÚV næstu árin og um leið loforð RÚV til samfélagsins – fyrir þig, fyrir menninguna, fyrir framtíðina, fyrir sjálfstæði, fyrir framtíðina
Hlustendur og áhorfendur eru í fyrsta sæti og starfsfólk kappkostar að þjóna þeim af kostgæfni með fjölbreyttu dagskrárefni í hæsta gæðaflokki.
Ný stefna var kynnt vorið 2017 sem ötullega hefur verið hrint í framkvæmd á öllum sviðum starfseminnar.
Meginstefnuáherslurnar fimm miða allar að þörfum notenda og samfélagsins undir framtíðarsýninni „fyrir vakandi og víðsýna þjóð“
FYRIR ÞIG: Að mæta þörfum og auka aðgengi fólksins í landinu
RÚV er íslenskur fjölmiðill í þjónustu almennings og hjartað í starfseminni er fólkið í landinu. RÚV hlustar og tekur mark á almenningi með markvissri notkun gagna og kannanna. Það endurspeglast bæði í þjónustunni og skipulagðri leit að hugmyndum frá almenningi.
Hugmyndadagar eru nú fastur liður í starfseminni, yfir eitt þúsund hugmyndir hafa borist og meira en fimmtíu þeirra hafa þegar orðið að veruleika eða eru í þróun.
RÚV English, sem veitir aðgang að fréttum og öðru dagskrárefni á ensku fagnaði eins árs afmæli.
Umtalsverðar umbætur voru gerðar á aðgengismálum fyrir blinda, heyrnalausa og heynaskerta, s.s. á Rúv.is og RÚV-appi en einnig með aukinni textun og túlkun í sjónvarpi.
Stöðugt er unnið að kynjajafnrétti í starfsemi og áherslur í dagskrá endurspegla íslenskt mannlíf á víðtækan hátt og hlutfall viðmælenda í dagskrá RÚV, utan frétta, er nú hnífjafnt.
Nýtt og endurbætt RÚV-app fyrir öll snjalltæki leit dagsins ljós um áramótin 2018/2019.
Nýtt app fyrir Apple TV notendur og sérstakt KrakkaRÚV app fylgdu í kjölfarið og útvarpsefni Rásar 1 og Rásar 2 gert aðgengilegt í hlaðvarpi á Spotify.
Ríflega 9000 útvarps- og sjónvarpsþættir eru í boði á vef RÚV sem gerir hann að stærstu innlendu streymisveitu landsins.
Yfir 90% landsmanna nota miðla RÚV í hverri viku og viðhorf almennings til þjónustunnar hefur ekki mælst jákvæðara í yfir áratug.
FYRIR MENNINGU: Að efla sköpun og miðlun íslenskrar menningar
RÚV er stærsta menningarstofnun þjóðarinnar; lífæð lista, menningar og íþrótta í landinu. RÚV varðveitir og miðlar menningu, vinnur að frumsköpun verka og framleiðslu leikins efnis úr íslenskum veruleika.
Innlend dagskrárgerð og menning var sem endranær í öndvegi í öllum miðlum RÚV.
Þrjár stórar leiknar þáttaraðir voru á dagskrá á árinu, Ófærð 2, Pabbahelgar og Brot
Þróun stórra leikinna verkefna hélt áfram, m.a. við Gullregn, Ráðherrann, Fanga 2, Sjálfstætt fólk og Verbúð.
Nýir menningarþættir hófu göngu sína svo sem Sporið, Fyrir alla muni, Veröld sem var og Kappsmál, skemmtiþáttur um íslenska tungu.
Veittir voru styrkir til tónsmíða úr Tónskáldasjóði RÚV og STEFs og Menningarverðlaun RÚV afhent að venju á þrettándanum.
Klassíkinni okkar var sjónvarpað beint úr Eldborgarsal, Tónlistarhátíð Rásar 1 var haldin í þriðja sinn.
Rás 2 tók þátt í nær öllum tónlistarhátíðum á landinu og hélt að venju Tónaflóð á Menningarnótt með glæsibrag.
Sjónvarpsefni framleitt eða sýnt á RÚV hlaut alls 26 tilnefningar á Eddunni, tvær af 4 tilnefningum til Fjölmiðlaverðlauna ársins.
RÚV hlaut tvær tilnefningar til Prix Europa-ljósvakaverðlaunanna á árinu.
FYRIR FRAMTÍÐINA: Að þjóna betur ungu fólki
Almannaþjónusta á að ná til allra aldurshópa. Til að RÚV uppfylli grunnhlutverk sitt er mikilvægt að unga fólkið hafi þörf fyrir, finni og noti þjónustu þess, eins og þeir sem eldri eru.
Barna- og ungmennaþjónustur RÚV: KrakkaRÚV, UngRÚV og RÚVnúll festu sig í sessi.
Verðlaunahátíð KrakkaRÚV og samtaka um barnamenningu, Sögur, fór fram í annað sinn en þar kusu börn á aldrinum 6-12 ára það besta á sviði tónlistar, bókmennta, sjónvarps og leikhúss.
Langlífasti barnaþáttur landsins Stundin okkar tók umtalsverðum breytingum en þættinum er nú alfarið stjórnað af börnum – í fyrsta sinn í sögu þáttarins.
Nýstofnað UngRÚV leggur áherslu á dagskrárefni fyrir unglinga og starfar ötullega með ungmennaráði sínu í hugmyndavinnu og fjölbreytta framleiðslu og útsendingar frá viðburðum.
Ungrúv tók vikulega á móti 10. bekkingum í RÚV og hélt sumarnámskeið fyrir unglinga á RÚV í dagskrárgerð.
Verksmiðjan, nýsköpunarkeppni ungs fólks á aldrinum 13 til 16 ára, þar sem hugmyndir og uppfinningar geta orðið að veruleika var haldin í fyrsta sinn.
FYRIR SJÁLFSTÆÐI: Að vera snarpari og dýpri í umfjöllun
RÚV er ein mikilvægasta og traustasta veita upplýsinga út í samfélagið. RÚV starfar í þágu almannahagsmuna og er hluti af almannavörnum landsins. Sjálfstæði, traust og óhlutdrægni eru lykilhugtök í því hvernig RÚV nálgast lýðræðishlutverk sitt. RÚV gætir jafnvægis milli hraðrar símiðlunar og dýpri umfjöllunnar og krafan um hraða má aldrei vera á kostnað áreiðanleika og gæða. Fjölmargt var gert á árinu til að dýpka umfjöllun um mikilvæg málefni.
Kveikur lauk sínu öðru starfsári og mikilvægi hans var enn á ný staðfest með umfjöllun um Samherjaskjölin sem 65% landsmanna fylgdist með og 81% aðspurðara töldu að þátturinn veitti samfélaginu mikilvægar upplýsingar.
Borgarafundir festu sig í sessi á árinu og fjallað var um loftslagsmál og geðheilsu ungs fólks.
Sjónvarpsfréttir á sunnudögum voru lengdar til að auka svigúm fyrir fréttaskýringar.
Nýr vikulegur fréttaskýringaþáttur, Heimskviður, í loftið á Rás 1 en hann fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin.
Fréttamiðlun á vef og samfélagsmiðlum efld til muna.
Fréttateymi RÚV stóðu vaktina dögum um allt land í sögulegu óveðri í desember og fluttu linnulítið fréttir á ástandinu á vefnum, í útvarpi og í sjónvarpi.
Kveikur hlaut blaðamannaverðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku og Edduna sem frétta- og viðtalsþáttur ársins, Arnar Páll Hauksson hlaut Blaðamannaverðlaun ársins og Bogi Ágústsson tók á móti fálkaorðu á Bessastöðum á þjóðhátíðardaginn.
FYRIR SAMFÉLAGIÐ: Að virkja og hvetja samfélagið
RÚV er uppbyggilegt hreyfiafl og leitar eftir samvinnu og samtali við ólíka aðila í samfélaginu í samræmi við hlutverk sitt, stefnu og framtíðarsýn. Allt starf RÚV miðar að því að skila auknu virði út í samfélagið.
Þjóðin sameinaðist í áhorfi á fjölda stórviðburða í útsendingu RÚV, s.s. Söngvakeppnina, Áramótaskaupið og Ófærð.
Viðburðir á borð við Borgarafundi, Menningarverðlaun, Sögur, Verksmiðjuna, Söngvakeppnina, Hugmyndadagar og Málþing um framtíð útvarps eru til þessa gerðir að hvetja, virkja og efla samfélagið.
Öflugt samstarf var við aðrar stofnanir og félög um dagskrárgerð og miðlun.
RÚV er virkur þáttakandi í stóru verkefni um þróun máltækni fyrir Íslensku en efni úr safni RÚV nýtist til að kenna vélum að læra og skilja tungumálið.
Samstarf við norrænu almannaþjónustumiðlanna, Nordic 12 er í sögulegum blóma en umfang norrænnar dagskrár hefur aukist um 62% síðustu 4 ár.
RÚV núll og UngRÚV stóð vaktina samfleytt í þrjá sólarhringa í átaki til varnar misnotkun ungs fólks á fíkniefnum
RÚV fékk jafnlaunavottun og heimild Jafnréttisstofu til að nota jafnlaunamerkið.
Á einstökum viðburði á fjölmiðladegi FKA fylltu hátt í 200 félagskonur FKA sjónvarpsstúdíó RÚV þar sem kynnt var samstarf til þriggja ára um að auka fjölbreytni viðmælenda í íslenskum fjölmiðlum, m.a. með viðmælendaþjálfun fyrir konur.
Á aðalfundi EBU, samtökum almannaþjónustumiðla í Evrópu, var árangri RÚV í jafnréttismálum miðlað en hann hefur vakið athugli og áhuga systurstöðva RÚV um nokkurt skeið.
Uppfært stjórnskipulag RÚV tók gildi 1. janúar 2018. Breytingarnar styrkja dagskrárþróun, framleiðslu og miðlun til stafrænnar framtíðar.
Þjálfun starfsfólks er lykilatriði í síbreytilegum heimi fjölmiðlunar. Örar breytingar tækni og samfélags gefa til kynna að störf í fjölmiðlun breytist ört á næstu árum. Samþætting tækni- og dagskrárvinnu krefst þjálfunar dagskrárgerðarfólks í að vinna með nýja tækni og ábyrgð teymis í dagskrárgerð og tækni er samofin. RÚV sinnir faglegri móttöku og þjálfun starfsfólks með RÚV-skólanum. Áfram var unnið með innri fræðslu og stöðuga þjálfun í gegnum skólann. Ráðningar starfsfólks til RÚV fylgja skýru og metnaðarfullu ráðningarferli þar sem miðað er að því að hæfasti starfsmaðurinn sé ráðinn. Ráðningin skal jafnframt uppfylla kröfur um fjölbreytni hópsins.
RÚV setur skýr viðmið um fagmennsku og nútímaleg vinnubrögð. Markviss miðlun upplýsinga hefur aukist mikið og áhersla á sýnileika verkefna og frumkvæði í starfi. Samsetning starfsmannahópsins á að endurspegla íslenskt samfélag auk þess sem fjölbreytileiki starfsfólks styrkir starfsemina. Öflug liðsheild og bætt leiðtogafærni eru markmið hjá RÚV sem unnið er að með markvissum hætti. Jafnrétti er RÚV hugleikið og hefur verið unnið að því með margvíslegum hætti. Jafnlaunakerfi RÚV var vottað í febrúar 2019 sem var stór áfangi á leið fyrirtækisins til jafnréttis.
Stór skref voru tekin í uppfærslu kerfa og samræmingu vinnubragða. Fjárhags- og mannauðskerfi RÚV hafa verið endurnýjuð og leiðir það til mun betri upplýsingagjafar og nútímalegra vinnuumhverfis. Unnið er eftir rafrænu skjalavistunarkerfi og sveigjanlegu vinnuumhverfi, Skjalastefna RÚV hefur verið skráð og rafræn málastýring innleidd með nýju kerfi. Rafræn gæða- og öryggishandbók var innleidd, skráning verklags- og vinnulýsinga var stöðluð þvert á fyrirtækið og stöðug þjálfun fest í sessi í gegnum RÚV-skólann.
Í safni Ríkisútvarpsins er varðveitt mikið magn sjónvarps- og útvarpsefnis allt frá upphafi útsendinga árið 1930. Óhætt er að segja að Ríkisútvarpið hafi skráð nútímasögu þjóðarinnar og að mikilvægur hluti þeirrar sögu sé geymdur í söfnum Ríkisútvarpsins. Þar á meðal eru sannkallaðar þjóðargersemar þar sem efni af öllu tagi er varðveitt. Má þar nefna upptökur af daglegu lífi Íslendinga á þessum tíma, upptökur frá stærstu viðburðum í sögu þjóðarinnar og ómetanlegar heimildir af merku fólki og merkum listviðburðum. Umfang þessa safnaefnis er mikið og er unnið að því jafnt og þétt að skrá það og yfirfæra á stafrænt form. Efni úr safni hefur í auknum mæli verið dagskrársett í nýjum spilara og aðgengi þannig aukið að eldri upptökum í útvarpi og sjónvarpi. Safnið er opið almenningi alla virka daga og hægt að hlusta og horfa á eldri upptökur í húsakynnum RÚV.
Á árinu var undirritaður samstarfsamningur við Almannaróm um þróun máltækni fyrir íslensku og nýtist efni úr safni RÚV til að kenna vélum að læra og skilja íslenskt mál. Þá fékk Ríkisútvarpið á árinu samþykki Þjóðskjalasafns Íslands fyrir rafrænni skjalavörslu og rafrænum skilum á skjölum. Það mun einfalda allan frágang á málakerfi fyrirtækisins í náinni framtíð.
RÚV hefur ríkar skyldur við íslenskt mál og í málstefnunni er málrækt í fyrirrúmi. Málfarsráðgjafar sinna yfirlestri og ráðgjöf og stuðla þannig að því að bæta íslenskufærni og auðga málfar starfsfólks. Daglegar ábendingar og fundir um málfar eru liður í þeirri starfsemi og umfang yfirlestrar hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Málfarsráðunautur og málfarsráðgjafar sinna líka upplýsingagjöf og fræðslu um íslenskt mál í vikulegu spjalli í Morgunútvarpinu á Rás 2, Málfarsmínútunni í Samfélaginu á Rás 1 og þættinum Orð af orði sem hefur verið á dagskrá Rásar 1 í hverri viku frá 2013.
Í stefnu RÚV til 2021 er kveðið á um að bæta skuli aðgengi innflytjenda. RÚV English birtir fréttir á ensku og heldur úti vikulegum spjallþætti á ensku, The Week in Iceland, um fréttir liðinnar viku á Íslandi á rúv.is. Í haust var RÚV English í samstarfi við Borgarbókasafnið um miðlun frétta til innflytjenda og nefndust þeir viðburðir The Week in Iceland at the Library. RÚV English heldur utan um þýðingar á völdu íslensku sjónvarpsefni sem birtist með texta á RÚV 2 og rúv.is og í fyrsta sinn var enskur þulur í útsendingu Eurovision á rúv.is.
RÚV ber að stuðla að því að blindir og sjónskertir, heyrnarlausir og heyrnarskertir fái upplýsingar og geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu. Gerðar hafa verið endurbætur á rúv.is og RÚV-appinu til að bæta aðgengi blindra og sjónskertra og auðvelda skjáþulu að lesa efni frá RÚV. Aðalfréttatími og íþróttir í sjónvarpi eru með samtímatextun á síðu 888 í textavarpi. Allt íslenskt sjónvarpsefni sem ekki er í beinni útsendingu er með skjátexta á síðu 888 og í spilara á rúv.is og í RÚV-appinu. Rittúlkun og bein textun á menningarefni hefur aukist. Áramótaávörp forseta Íslands og forsætisráðherra voru send út með táknmálstúlkun á RÚV 2. Þá var Söngvakeppni íslenskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í fyrsta sinn send út með táknmálsþul í mynd á RÚV 2.
Meðalfjöldi stöðugilda
Meðalaldur starfsfólks
Meðalstarfsaldur starfsfólks
Hlutfall kvenna í hópi starfsmanna
Eftirfarandi texti birtist í skýrslu félagsmála- og jafnréttisráðherra 2015-2017:
Á undanförnum misserum hefur RÚV haft jafnréttismál í forgrunni í allri sinni starfsemi og náð marktækum árangri. Á árunum 2014 og 2015 voru hlutföll karla og kvenna jöfnuð í yfirstjórn RÚV, í hópi millistjórnenda og umsjónarmanna í allri dagskrá RÚV, í útvarpi og sjónvarpi.
Skýr markmið og nákvæm greining
Liður í jafnréttisvinnu RÚV er samræmd skráning á kynjahlutfalli viðmælenda sem tekin var upp 1. desember 2015 birt er opinberlega á þriggja mánaða fresti. Skráðir eru viðmælendur í fréttum og fréttatengdum þáttum og í reglubundnum innlendum þáttum í útvarpi og sjónvarpi. Talning sem þessi gefur ekki heildarmynd af því hver birtingarmynd karla og kvenna er í dagskránni en hún er mikilvægur liður í því að mæla hver staðan og þróunin er. RÚV hefur markvisst staðið fyrir ýmsum aðgerðum til að hvetja konur til þátttöku á sviðum sem þær hafa ekki verið jafnar körlum m.a. námskeiði í íþróttafréttamennsku fyrir konur, námskeiðum í spurningatækni fyrir Gettu betur og kynjakvóta í liðum í Gettu betur. Þessar aðgerðir báru góðan árangur.
RÚV setti sér skýr markmið um að ná jafnvægi milli kynja í hópi viðmælenda. Markmiðið er að það séu algerlega jöfn kynjahlutföll í allri dagskrá allra miðla, að tekin séu viðtöl við jafnmargar konur og karla. Fréttir endurspegla samfélagið sem við búum í og í því samfélagi er því miður ekki enn jafnvægi á milli kynja í valdastöðum, t.a.m. í stjórnmálum og stjórnunarstöðum í atvinnulífinu. Því þótti óraunsætt að setja jafn ströng viðmið fyrir fréttir og aðra dagskrá. Sett var það viðmið að hlutfall kvenna sem viðmælenda í fréttum á ársgrundvelli yrði yfir 35% á árinu 2017 og myndi svo vaxa jafnt og þétt á næstu árum.
Gott jafnvægi milli kynja í dagskrá RÚV 2019
Skráðir eru viðmælendur í fréttum og fréttatengdum þáttum og í reglubundnum innlendum þáttum í útvarpi og sjónvarpi. Talning sem þessi gefur ekki heildarmynd af því hver birtingarmynd karla og kvenna er í dagskránni en hún er mikilvægur liður í því að mæla hver staðan og þróunin er.
Hlutfall kynjanna í dagskrá RÚV, utan frétta, var alveg jafnt, 50% karlar og 50% konur. Með kynjajafnvægi í dagskrá sker RÚV sig frá flestum miðlum hérlendis og erlendis. Séu eingöngu fréttatímar og fréttatengdir þættir teknir saman er hlutfall viðmælenda 63% karlar og 37% konur. Það skýrist af hærra hlutfalli karla í leiðandi stöðum í stjórnmálum og samfélaginu, sem fluttar eru fréttir af. Tölurnar hafa þróast í átt til jafnvægis frá því að mælingar hófust.
Jafnlaunavottun
Stjórnendur hafa einnig unnið markvisst að því að eyða út kynbundnum launamun sem er nú kominn vel undir 2% og hlaut RÚV gullmerki jafnlaunaúttektar PwC vorið 2016, fyrst fjölmiðla. Jafnlaunakerfi hefur verið byggt upp og RÚV hlaut í kjölfar þess jafnlaunavottun og heimild Jafnréttisstofu til að nota jafnlaunamerkið.