18 Sep Arnhildur verðlaunuð fyrir Loftslagsþerapíuna
Arnhildur Hálfdánardóttir, fréttamaður á fréttastofu RÚV, hlaut fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á Degi íslenskrar náttúru þann 16. september. Verðlaunin fékk hún fyrir þáttaröðina Loftslagsþerapíuna sem var á dagskrá Rásar 1 haustið 2019. Í rökstuðningi dómnefndar segir að með þáttum Arnhildar hafi hún skoðað ýmsa snertifleti loftslagsbreytinga við hið mannlega, meðal annars pólitík og siðferði. Í fréttatilkynningunni um verðlaunin segir að Arnhildi hafi tekist með bæði orðum og tónum að nálgast staðreyndir um eitt mest aðkallandi umfjöllunarefni samtímans á hlýjan og listrænan hátt.
Sorry, the comment form is closed at this time.