Arkþing vinnur samkeppni um lóðina við Efstaleiti

30 Jun Arkþing vinnur samkeppni um lóðina við Efstaleiti

Tillaga Arkþings um skipulag á lóð RÚV við Efstaleiti bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni á vegum Reykjavíkurborgar og RÚV. Niðurstaðan var kynnt við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur 30. júní. Í vinningstillögunni er gert ráð fyrir að byggingarmagn á lóðinni sé samtals um 31.500 m2; meira en 250 íbúðir og auk þess umtalsvert rými fyrir skrifstofu- og þjónustubyggingar. Samkeppnin var haldin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og dómnefnd skilaði einróma niðurstöðu.
http://www.ruv.is/frett/arkthing-vinnur-samkeppni-um-efstaleitislod

No Comments

Post A Comment