10 Sep Á allra vörum söfnunarátakið á RÚV
Söfnunarátakið Á allra vörum VAKNAÐU! var áberandi í öllum miðlum Ríkisútvarpsins í byrjun september, en RÚV er einn af bakhjörlum átaksins. Að þessu sinni var safnað fyrir „Eitt líf“ sem heldur úti öflugu forvarnar- og fræðslustarfi gegn lyfja- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna í grunnskólum landsins. Eitt líf varð til eftir að Einar Darri Óskarsson varð bráðkvaddur á heimili sínu vegna lyfjaeitrunar í maí 2018.
Sorry, the comment form is closed at this time.