24 Apr Ungir fréttamenn á RÚV
KrakkaRÚV og Reykjavíkurborg og buðu tíu ungmennum úr 8. – 10. bekk að gerast fréttamenn á Barnamenningarhátíð í Reykjavík 19. – 24. apríl. KrakkaRÚV hélt námskeið þar sem margir reynsluboltar innanhúss miðluðu reynslu sinni og farið var yfir fréttaskrif, framsögn, viðtalstækni, internetið og tækni. Hópurinn fékk svo tækifæri til að fjalla um hátíðina í máli og myndum og birtust fréttirnar á KrakkaRÚV, RÚV.is og í Krakkafréttum.
No Comments