20 Apr Ungir fréttamenn á RÚV.is
Á Barnamenningarhátíð gafst unglingum í 8.-10. bekk tækifæri til að spreyta sig á blaðamennsku í samstarfi RÚV og Barnamenningarhátíðar. Tíu unglingar fengu leiðsögn frétta- og dagskrárgerðamanna á námskeiði í Útvarpshúsinu og lærðu undirstöðuatriði í fréttaskrifum og frásögnum. Krakkarnir fræddust um mismunandi tegundir dagskrárgerðar, æfðu sig í framsögn og kynntust starfsemi RÚV. Í námskeiðslok fluttu börnin sjálf fréttir af viðburðum hátíðarinnar sem birtar voru jafnóðum á RÚV.is.
No Comments