Andersson tekur framúr Johansson
16.05.2012 - 07:31
Samkvæmt nýjum tölum frá Tölfræðistofnun sænska ríkisins eru þeir ósköp fáir sem deila eftirnafni með Línu Langsokki, það er Efraimsdotter Långstrump. Þeir eru hinsvegar nokkru fleiri sem bera sama eftirnafn og systkinin Emil og Ída, en 1,1% sænsku þjóðarinnar heitir Svensson að eftirnafni.
Lesa meira
Lesa meira
Lokað í ríkinu
30.04.2012 - 12:38
Þó það sé virkur dagur hafa vínbúðirnar í sænsku borgunum Uppsölum og Lundi lokaðar í dag. Samt sem áður er líklega aldrei jafnmikið af áfengi drukkið í þessum borgum og einmitt í dag. Það er nefnilega Valborgarmessa, og þá er húllumhæ hjá námsmönnum.
Lesa meira
Lesa meira
Sumartími fjölgar hjartaáföllum
26.03.2012 - 11:00
Evrópubúar vöknuðu margir óvenjuþreyttir í morgun því í gær var þar breytt í sumartíma og klukkutími tekinn úr sólarhringnum. Afleiðingarnar eru margslungnar og gætu snert prófatíma í menntaskólum, atvinnuöryggi námaverkamanna og inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Gylfi Ólafsson í Stokkhólmi missti klukkutíma svefn þegar sumartíminn gekk í garð í gær.
Lesa meira
Lesa meira
Stjörnuljóðskáld í söngvakeppninni
12.03.2012 - 20:25
Sænska þjóðin hefur valið framlag sitt til söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Keppnin hefur verið fádæma vinsæl þetta árið, þökk sé meðal annars ljóðalestri sólbrennds rithöfundar. En aðstandendur keppninnar eru sakaðir um að hygla fólki sem þegar er frægt og útiloka almenning frá þátttöku.
Lesa meira
Lesa meira
Hvorki hann né hún, heldur hen
01.03.2012 - 21:34
Hún flaug hátt og víða, fréttin af ritgerð sem háskólanemar í Bandaríkjunum höfðu sett saman um áætlaðan kostnað við byggingu Helstirnisins úr Stjörnustríðsmyndunum. Þar kom fram að verkið myndi líklega kosta andvirði eins milljarðs milljarða íslenskra króna, enda helstirnið 140 kílómetrar í þvermál og úr stáli. En þegar fréttir voru fluttar af málinu í Svíþjóð var það ekki gleði yfir væntingum um hærra stálverð eða gagnrýni á útreikningana sem tók undir sig sviðið, heldur umræður í persónufornöfn og jafnrétti kynjanna.
Lesa meira
Lesa meira
Karlrembur í lestinni
13.02.2012 - 19:00
Sænsk vefsíða birtir myndir sem eru teknar í laumi af klofum karlmanna sem sitja gleiðir í jarðlestum Stokkhólms. Eins og við er að búast hefur síðan vakið umtal og spurningar um tengsl kvenréttinda og lestaferða.
Lesa meira
Lesa meira
Öskur ljónsins selst vel
30.01.2012 - 19:00
Mest selda platan í sænskum plötubúðum þessa dagana er eftir tvær systur í kringum tvítugt sem koma úr úthverfi Stokkhólms. Tónlistartímarit um allan heim mæra tónlistina og tónleikamiðarnir seljast upp á mettíma.
Lesa meira
Lesa meira
Transfólk tekið úr sambandi
17.01.2012 - 19:00
„Skoða þarf málin ofan í kjölinn út frá læknisfræðilegu og lögfræðilegu sjónarhorni“, segja Kristsdemókratar í Svíþjóð. Þeir sæta nú gagnrýni fyrir að þæfa málin þegar samstarfsflokkar í ríkisstjórninni vilja leyfa transfólki að eignast börn.
Lesa meira
Lesa meira
Bók um Zlatan drifkraftur breytinga
08.12.2011 - 17:00
Vinsælasta bókin samkvæmt sænskum metsölulistum er bók um knattspyrnumann með eitraðan hægri fót. Ekki aðeins virðist bókin opna heim bókmennta fyrir börnum og ungmennum sem aldrei lesa nema tilneydd, heldur hefur velgengni bókarinnar einnig sett samstarf bókasafna og bókaútgefenda í uppnám.
Lesa meira
Lesa meira
Sjónvarpseikin varin
07.12.2011 - 16:27
Á meðan mótmælendur tjalda við Wall Street og á Austurvelli, er lítill vindur í Occupy-hreyfingunni í Svíþjóð. En sambærileg hreyfing aðgerðasinna hefur þó látið til sín taka síðustu vikur í Stokkhólmi, til að vernda tré.
Lesa meira
Lesa meira

Bogi Ágústsson
Borgþór Arngrímsson
Eiríkur Guðmundsson
Gísli Kristjánsson
Guðjón Helgason
Gunnar Hrafn Jónsson
Gylfi Ólafsson
Ingólfur Bjarni Sigfússon
Kristinn R. Ólafsson
Matthías Már Magnússon
Sigrún Davíðsdóttir
Sveinn Guðmarsson
Sveinn Helgason