Skyndiréttir Nigellu

Á dagskrá á fimmtudagskvöldum kl. 20.10
Í þessari þáttaröð sýnir breska eldhúsgyðjan Nigella Lawson hvernig matreiða má girnilega rétti með hraði og lítilli fyrirhöfn.
Þótt stundum gefist naumur tími til eldamennsku í önn dagsins þarf ekki endilega að slá af gæðakröfum.
Nigella sýnir hvernig hinn önnum kafni kokkur getur stytt sér leið og sparað tíma en engu að síður töfrað fram krásir sem enginn matgæðingur fær staðist.
Uppskriftir er að finna í bókinni Nigella Express.
Nægtaborð Nigellu
Nægtaborð Nigellu (Nigella Feasts) er bresk matreiðsluþáttaröð, sem sýnd var veturinn 2007. Þar snaraði eldhúsgyðjan og matreiðslubókahöfundurinn þekkti, Nigella Lawson fram girnilegum krásum. Hvort sem til stendur að halda veislu, snæða kvöldverð með tengdafólkinu, morgunmat í rúminu eða eitthvað þar á milli lumar Nigella á uppskriftum sem hæfa tilefninu. Svo er henni einkar lagið að láta líta svo út að tilreiðslan sé svo einföld og auðveld að maturinn eldi sig nánast sjálfur fyrirhafnarlaust.
Smelltu hér til að skoða vefsíðu Nigellu.
Athugið að RÚV hefur aðeins rétt til að birta eina uppskrift úr hverjum þætti á vefnum.