Íþróttir


Menning

Dregið í undanriðla 7. febrúar

Sunnudaginn 7. febrúar kemur í ljós í hvorum undanriðlinum Ísland keppir í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Evróvisjón, í Osló í maí. Fyrri undanriðillinn er 25. maí en sá síðari 27. maí. Aðalkeppnin fer fram laugardaginn 29. maí.

Men at Work í vondum málum

Alríkisdómstóll í Sydney í Ástralíu hefur úrskurðað að flautustef lagsins Down Under með áströlsku hljómsveitinni Men At Work sé stolið. Hljómsveitinni beri að greiða rétthöfum sönglagsins Kookaburra Sits In The Old Gum Tree hæfilegar skaðabætur. Síðarnefnda lagið var samið árið 1934 og var um áratuga skeið vinsælt barnalag í Ástralíu.

Mjög fær að teikna

Þótt Alexander Ómar Breiðfjörð Kristjánsson, sé aðeins níu ára hefur hann náð ótrúlegum tökum á blýantsteikningum þar sem hann teiknar aðallega andlitsmyndir af þekktum Íslendingum. Forsetinn og Þórbergur Þórðarson, rithöfundur eru í mestu uppáhaldi hjá honum.

Stjórnmál

Reiði Hollendinga skiljanleg

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra segir reiði Hollendinga skiljanlega - þeir vilji finna sökudólga, rétt eins og íslensk yfirvöld. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra vonar að þetta trufli ekki viðræður um lausn í Icesave deilunni.

Áhyggjur komu upp sumarið 2008

Nout Wellink, seðlabankastjóri Hollands, kveðst enga ábyrgð bera á því hvernig fór fyrir Icesave í Hollandi. Íslendingar hafi sagt að allt væri í lagi og ábyrgðin sé þeirra.

Fjárhagsstjórn sett yfir Álftanes

Eftirlitsnefnd sveitarfélaga lagði til við samgönguráðherra í dag að sett yrði fjárhagsstjórn yfir sveitarfélagið Álftanes. Ráðherra mun taka ákvörðun um framhaldið á morgun eða allra næstu dögum.

Viðskipti

Hagar skráðir í Kauphöllina

Arion Banki hyggst skrá Haga í Kauphöllina, þar sem selja á hlut bankans í opnu útboðsferli. Núverandi stjórnendum Haga gefst kostur á að kaupa 15% hlut, þar af Jóhannesi Jónssyni 10%, en hann verður áfram stjórnarformaður fyrirtækisins.

Sex kaupendur koma til greina

Tólf tilboð hafa borist í tryggingarfélagið Sjóvá. Í tilkynningu frá Íslandsbanka sem annast söluna segir að flest tilboðin séu í allt hlutafé fyrirtækisins.

Óhætt væri að afnema höftin

Aðeins tæpir ellefu milljarðar af gjaldeyri hafa komið til landsins í formi nýfjárfestinga frá því losað var að hluta til um gjaldeyrishöftin. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir þetta sýna að óhætt sé að afnema höftin með öllu.