Beint í leiðarkerfi.

Tveir fyrrverandi aðstoðarmenn ráðherra hafa verið ráðnir tímabundið og án auglýsingar til annarra starfa í stjórnarráðinu. 26 starfsmenn stjórnarráðsins hafa verið ráðnir án auglýsinga.
Nú starfa tveir tímabundið í forsætisráðuneytinu án þess að störf þeirra hafi verið auglýst. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn framsóknarþingmannsins Eyglóar Harðardóttur. Annar starfsmannanna er Einar Karl Haraldsson, sem er upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. Hann er fyrrverandi aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar úr iðnaðarráðuneytinu. Þrír lögfræðingar starfa í dóms- og mannréttindaráðuneytinu án þess að störfin hafi verið auglýst og eru störfin öll tímabundin.
Kristrún Heimisdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr utanríkisráðuneytinu er einn fimm starfsmanna félagsmálaráðuneytisins sem hafa verið ráðnir á árinu án auglýsingar.
Sex starfa tímabundið í fjármálaráðuneytinu án þess að auglýst hafi verið í störfin. Einn þeirra er Elías Jón Guðjónsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. Hann er fyrrverandi varaformaður ungliðahreyfingar vinstri grænna.
Í menntamálaráðuneytinu starfa fjórir um tíma án þess að störf þeirra hafi verið auglýst. Sama gildir um tvo starfsmenn samgönguráðuneytisins. Annar var ráðinn vegna umsóknar að Evrópusambandinu.
Einn starfar nú tímabundið í iðnaðarráðuneytinu án þess að starfið hafi verið auglýst. Tveir í utanríkisráðuneytinu.
Guðjón Arnar Kristjánsson, fyrrverandi alþingismaður Frjálslynda flokksins var ráðinn án auglýsingar í tvo til þrjá mánuði sem ráðgjafi Jóns Bjarnasonar í sjávarútvegsráðuneytinu vegna breytinga á lögum um fiskveiðistjórnun.
Tekið skal fram að ekki þarf að auglýsa tímabundin störf.
frettir@ruv.is