Beint í leiđarkerfi.

Biskup hefur bođiđ séra Gunnari Björnssyni, fyrrverandi sóknarpresti á Selfossi, starfslokasamning uppá samtals 20 milljónir króna.
Í bréfi sem biskupsembættið hefur sent séra Gunnari kemur fram að honum eru boðin laun út skipunartímann eða í 31 mánuð, samtals tæpar 18 milljónir króna. Að auki verði greiddur tveggja milljóna króna lögmannskostnaður vegna málferla sóknarnefndar. Í bréfinu kemur fram að séra Gunnari hafi verið boðið þetta í lok september en hann hafnaði því. Engu að síður mun séra Gunnar eiga fund með biskupi í næstu viku þar sem meðal annars starfslokasamningurinn verður ræddur.
frettir@ruv.is