Beint í leiðarkerfi.

Úrræði Íbúðalánasjóðs vegna greiðsluvanda viðskiptavina sjóðsins eru nokkur. Til að mynda er hægt að skuldbreyta vanskilum, fresta afborgunum af lánum eða lengja lánstíma. Fyrir áratug sóttu 150 um aðstoð Íbúðalánasjóðs vegna greiðsluerfiðleika, umsóknum fjölgaði svo næstu ár þar á eftir og urðu flestar 2003 þegar þúsund manns sóttu um.
Umsóknum fækkar svo en fjölgar svo gríðarlega á síðasta ári þegar þegar þær verða rúmlega fjórtánhundruð. Umsóknum vegna greiðsluerfiðleika til Íbúðalánsjóðs tekur að fjölga verulega í október á síðasta ári og á síðasta ársfjórðungi sækja tæplega 950 um aðstoð sjóðsins vegna greiðsluerfiðleika sem er álíka fjöldi og hefur sótt um slíka aðstoð það sem af er þessu ári.
frettir@ruv.is