Beint í leiðarkerfi.

Ákvörðun um stækkun álversins í Straumsvík er ekki á valdi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar líkt og Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra heldur fram. Ef á að taka nýja ákvörðun í málinu verða Hafnfirðingar sjálfir að gera það með íbúakosningu. Þetta segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað fyrirfram að kosningin skyldi vera bindandi í samræmi við sveitarstjórnarlög. Niðurstaða íbúakosningarinnar er því lagalega bindandi, segir Gunnar Helgi. Hann segir eðlilegt að túlka sveitarstjórnarlögin þannig að vald til ákvörðunar liggi áfram hjá Hafnfirðingum.
frettir@ruv.is