Með blæti fyrir glæpasögum
Fyrst birt: 09.07.2012 13:40, Síðast uppfært: 13.07.2012 15:37
Flokkar: Fólk í fréttum, Virkir morgnar

Katrín Jakobsdóttir Menntamálaráðherra mætti í Virka morgna til að tala um allt annað en pólitík í Mánudagsdrottningarviðtalinu.
Katrín hefur tekið sér margt fyrir hendur um ævina en hún vann meðal annars sem kennari og málfarsráðunautur áður en hún varð ráðherra. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík en er þó með góð tengsl við landsbyggðina. Hún elskar glæpasögur og lofar að skrifa eina slíka þegar hún öðlast innri ró.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













