Vinsælustu lög ársins 2011

Of Monsters & Men
Árslisti Vinsældalista Rásar 2 var opinberaður í dag.
Við samantekt listans var litið á gengi allra 25 laganna sem náðu toppsæti Vinsældalista Rásar 2 á árinu. Fyrir hverja viku fengu lögin stig, efsta sætið gaf 30 stig, annað sætið 29 stig og svo koll af kolli. Lögunum var að lokum raðað upp eftir heildarstigafjölda.
Með þessu móti er tekið tillit til gengi laganna á listanum í heild sinni, í stað þess að horfa eingöngu til þess hversu lengi þau voru á toppnum. Fjögur efstu lögin höfðu afgerandi forystu og eitt þeirra skar sig verulega úr, Little Talks með hljómsveitinni Of Monsters And Men fékk samtals 438 stig og er í efsta sæti Árslistans 2011. Eurovision lagið Coming Home með Vinum Sjonna er í 2. sæti með 412 stig, sem skýrist af langri veru lagsins á listanum í ár. Í næstu sætum eru tvö lög með Mugison, Stingum af með 379 stig og Haglél með 365 stig. Næsta lag var svo með rétt rúmlega 300 stig, sjá heildarlista hér fyrir neðan:
1 OF MONSTERS AND MEN-Little Talks
2 VINIR SJONNA/SIGURJÓN BRINK-Coming Home/Aftur heim
3 MUGISON-Stingum Af
4 MUGISON-Haglél
5 VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN-Okkar eigin Osló
6 ADELE-Someone Like You
7 BERNDSEN & BUBBI-Úlfur Úlfur
8 BUBBI & SÓLSKUGGARNIR-Ísabella
9 VALDIMAR-Undraland
10 VALDIMAR-Yfirgefinn
11 GUS GUS-Over
12 ELÍN EY & PÉTUR BEN-Þjóðvegurinn
13 MUGISON-Kletturinn
14 ARCADE FIRE-Modern Man
15 COLDPLAY-Every Teardrop Is A Waterfall
16 ÞÓRUNN & BERNDSEN-For Your Love
17 OF MONSTERS AND MEN-King and Lionheart
18 LAY LOW-Brostinn strengur
19 HJÁLMAR-Í gegnum móðuna
20 SÓLEY STEFÁNSDÓTTIR-Smashed Birds
21 VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN-Það styttir alltaf upp
22 ADELE-Rolling In The Deep
23 A FRIEND IN LONDON-New Tomorrow
24 BUBBI & SÓLSKUGGARNIR-Blik þinna augna
25 GRAFÍK-Bláir fuglar
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







