Verða ekki viðstödd MTV-verðlaunin

Hljómsveitin Of Monsters and Men er nú stödd á Írlandi og átti frí í dag sem var meðal annars nýtt til að leika golf. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona sveitarinnar, segir það hafa komið þeim á óvart hversu ofarlega platan My Head is An Animal komst á breska plötulistanum.
Platan hafnaði í þriðja sæti og smáskífan Little Talks er í tólfta sæti á breska smáskífulistanum. Myndbandið við lagið getur síðan unnið til verðlauna á MTV-verðlaununum fyrir bestu leikmyndina í mánuðinum en sveitin sjálfur verður þó víðsfjarri, hún er of upptekin við tónleikahald.
Nanna sagði í samtali við fréttastofu að árangurinn í Bretlandi hefði komið þeim á óvart, þau hefðu ekki átt von á því að enda svona ofarlega. Niðurstaðan væri hins vegar mikilvæg uppá framhaldið. Söngkonan taldi þau hins vegar ekki vera orðin heimsfræg; þau ættu enn eitthvað eftir í það.
Sveitin verður nú á tónleikaferðalagi næstu þrjár vikurnar en fær síðan kærkomið frí í mánuð. Eftir að hafa fengið tækifæri til að hitta fjölskyldu og vini verður lagt aftur af stað í tónleikaferðalag um heiminn þar sem sveitin spilar meðal annars í Bandaríkjunum og Ástralíu áður en hún heldur í mikið tónleikaferðalag um Bretland til að fylgja eftir vinsældum sínum þar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














