Vélsleðasafn í Kristjánsborg

Kristján Auðunsson er forfallinn vélsleðamaður.

Saga vélsleðans á Íslandi er í grófum dráttum þannig að bændur fara að nota sleða um 1965 og á næstu árum verða sleðar almenningseign.

Kristján Auðunsson í Stykkishólmi er forfallinn vélsleðamaður en fyrsta sleðann eignaðist hann1984. Konan hans á sleða og dóttirin sýnir mikinn áhuga, 5 ára gömul.

Hann byrjaði að safna sleðum 1989 og í skemmunni sem kölluð er Kristjánsborg má sjá fjölbreytileika þessa fyrirbæris en þar geymir hann um 40 sleða, m.a. er þar hálft eintak af eina vélsleðanum sem var smíðaður á Íslandi. Sá heitir Snjólfur. Landinn heimsótti Kristjánsborg.

Vertu vinur Landans á Facebook

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku