Varað við 30-40 m/s

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Vegagerðin varar við snörpum vindhviðum, 30-40 m/s, á norðanverðu Snæfellsnesi í dag og fram undir kvöld.

Það er hálka víða um land og sum staðar glerhált, eins og á Grafningsvegi, Fróðarheiði, Holtavörðuheiði, í Ísafjarðdjúpi, á Vatnsfjarðarhálsi, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Klettshálsi, Kleifaheiði,  á milli Sauðárkróks og Hofsós og á Mývatnsheiði.

Þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Veður

Tilkynna um bilaða upptöku