Tom Cruise að skilja

Flokkar: Erlent, Mannlíf
Mynd: Getty Images


  • Prenta
  • Senda frétt

Hollywood-hjónin Tom Cruise og Katie Holmes eru að skilja. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. Cruise er staddur hér á landi við tökur á kvikmyndinni Oblivion en hjónin sáust síðast saman á mynd hér á landi þegar þau röltu um Þingholtin í Reykjavík.

Lögfræðingur Katie Holmes staðfesti skilnaðinn í samtali við BBC. Hann sagði jafnframt að Holmes hefði hagsmuni dóttur sinnar í huga og að skilnaðurinn væri hennar einkamál. Hjónin hafa verið gift í fimm ár og eiga eina dóttur saman, Suri Cruise. Holmes er þriðja eiginkona Tom Cruise en þau giftu sig við hátíðlega athöfn í ítölskum kastala í nóvember 2006.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku