Þormóður keppti í Frakklandi
Fyrst birt: 06.02.2012 20:51, Síðast uppfært: 06.02.2012 20:51

Júdókappinn Þormóður Árni Jónsson úr Júdófélagi Reykjavíkur féll úr keppni strax í fyrstu umferð á sterku alþjóðlegu móti sem fram fór í París um helgina.
Þormóður beið lægri hlut fyrir Frakkanum Mathieu Thorel sem sló út þrjá keppendur á mótinu og hafnaði í fimmta sæti. Thorel var fyrir mótið í 52. sæti heimslistans, fjórum sætum ofar en Þórmóður sem var í 56. sæti.
Þormóður vinnur nú að því að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í London í sumar og mun keppa á fleiri mótum erlendis á næstunni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







