Þjófur réðist á öryggisvörð

Kona var handtekin á öðrum tímanum í nótt vegna þjófnaðar og líkamsárásar í verslun 10/11 á Barónsstíg í Reykjavík.

Öryggisvörður reyndi að stöðva konuna eftir að hún var staðin að þjófnaði í versluninni. Hún brást ókvæða við og réðist að öryggisverðinum. Lögregla var kölluð til og konan handtekin. Hún var í annarlegu ástandi og er vistuð í fangageymslu uns hægt er að ræða við hana.

Tvær konur voru stöðvaðar í nótt, grunaðar um akstur undir áhrifum. Önnur var stöðvuð á Miklubraut rétt fyrir klukkan hálf tvö í ótt grunuð um ölvun við akstur. Hin var stöðvuð á Suðurlandsbraut og lék grunur á að hún væri undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Báðum konunum var sleppt að lokinni sýnatöku.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku