Stjórnir lífeyrissjóðanna meðvirkar

Frá blaðamannafundinum í dag þar sem skýrslan var kynnt. Mynd: Aðalbjörn Sigurðsson.

Stjórnir sumra lífeyrissjóða voru óþægilega meðvirkar, að mati nefndar sem skoðaði störf lífeyrissjóða fyrir hrun. Nefndin vil að einn stjórnarmaður hið minnsta verði kosinn beinni kosningu á ársfundi.

Landssamband Lífeyrissjóða samþykkti í júní í fyrra að þriggja manna nefnd yrði sett saman og færi yfir starfsemi og fjárfestingar lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Niðurstaða nefndarinnar var kynnt í dag - og erfitt er að lesa annað út úr niðurstöðu nefndarinnar en að stjórnir og yfirmenn lífeyrissjóðanna hafi ekki staðið sig nógu vel. Megin niðurstaðan er raunar sú að fara þurfi í heildar endurskoðun á lögum um lífeyrissjóði því óskýr lög hafi orðið til þess að menn fóru óvarlega í fjárfestingar.

Nefndarmenn segja að stjórnir sumra sjóða hafi verið óþægilega meðvirkar á þessum tíma og menn talið eftir á að þeir hafi verið fórnarlömb aðstæðna. Talað er um að í einhverjum tilfellum hafi verið óvarlega fjárfest.  Gagnrýnt er að hjá flestum sjóðum hafi engar lánanefndir verið til og í þeim fáu tilfellum sem svo hafi verið hafi sjaldnast verið skrifuð fundargerð þegar nefndirnar komu saman. Gögn sem sjóðir sendu nefndinni um forsendur fyrir fjárfestingum voru oft á tíðum ekkert annað en kynningarefni banka.  

Það er erfitt að túlka skýrsluna öðruvísi en á þann hátt að stjórnir og stjórnendur sjóðanna hafi ekki staðið sína plikt árin fyrir hrun. Enda er gerð tillaga um að breytingar verði gerðar varðandi stjórnir sjóðanna. Nefndarmenn vilja að gerð verði breyting á stjórnum sjóðanna. Stjórnarmenn sitji 12 ár hið mesta, gefi í öllum tilfellum upp verðbréfaviðskipti sín til að fyrirbyggja hagsmunaárekstra og síðast en ekki síst að einn stjórnarmaður hið minnsta verði kosinn beinni kosningu á ársfundi. Þar með verði tryggt að sjóðsfélagar lífeyrissjóðanna eigi fulltrúa í stjórn.

 „Við erum að segja það að sjóðsfélagar mættu allavega fylgjast betur með þessu, en þó það sé sagt þá eru til sjóðir þar sem sjóðsfélagar kjósa beinni kosningu og þeir sjóðir fóru ekkert betur út úr hruninu en aðrir,“ segir Hrafn Bragason, formaður nefndarinnar. Hann vonar að stjórnendur sjóðanna muni nú leggjast yfir skýrsluna. 

„Ég er líka sannfærður um að þeir munu líka breyta sínu vinnulagi. Þeir eru þegar byrjaðir á því, þannig að ég geri ráð fyrir því. En hvað Alþingi gerir í þessu efni get ég ekki sagt um en ég myndi ráðleggja þingmönnum að lesa þessa skýrslu vel og athuga hvort ekki sé eitthvað fyrir þá að gera þar líka,“ segir Hrafn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku