Stjórnarmenn íhugi stöðu sína

Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði.

Lífeyrissjóðakerfið er mikilvægara en nokkur einstakur maður sem í því starfar. Þetta segir Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði. Hann segir að stjórnarmenn í lífeyrissjóðunum þurfi að íhuga stöðu sína.

Ólafur hélt erindi í Grasrótarmiðstöðinni í Brautarholti í Reykjavík í dag. Þar fjallaði hann um stöðu lífeyrissjóðanna í kjölfar skýrslu úttektarnefndar sjóðanna sem kom út fyrir skömmu. Ólafur segir að fjölmargra úrbóta sé þörf. Meðal annars sé nauðsynlegt að styrkja allt regluverk í kringum lífeyrissjóðina, og endurskoða lög um sjóðina. „Í öðru lagi þurfa menn sem hafa verið starfandi á þessum vettvangi að íhuga sína stöðu og meta hvaða aðgerðir eru líklegastar til að skapa traust, sem er nauðsynlegt að ríki á líeyrissjóðskerfinu.“

Spurður um hvort þeir stjórnarmenn, sem tóku umræddar ákvarðanir, eigi hreinlega að segja af sér segir Ólafur best að láta mönnum það eftir að meta sína stöðu. „Og íhuga hvað þetta kerfi er mikilvægt. Það er mikilvægara heldur en nokkur einstakur maður sem í því starfar. Þetta er kerfi sem snertir alla landsmenn og það eru miklir hagsmunir tengdir því að það nái árangri. Og þeim árangri verður ekki náð nema á því ríki traust.“ Segir Ólafur.

Að hans mati þarf í þriðja lagi að efla eftirlit með sjóðunum. „Það þarf að endurskoða samspil almannatrygginga og greiðslna úr lífeyrissjóðum. Fólk stendur frammi fyrir því, sérstaklega þeir sem hafa lægstan lífeyrinn, að þeir fá út úr þessu kerfi, rétt eins og innborganir í sjóðinn hafi verið eins og hver annar skattur. Þetta er náttúrulega óbærilegt og er mjög fallið til þess að skerða þetta traust.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku