Stiller byrjaður að twitta um Ísland

Flokkar: Innlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

Bandaríski stórleikarinn Ben Stiller er staddur hér á landi til að undirbúa tökur fyrir kvikmyndina The Secret Life of Walter Mitty. Stiller þykir nokkuð öflugur á samskiptasíðunni Twitter og er þegar byrjaður að skrifa um heimsókn sína til Íslands.

Stiller birti þannig fyrstu færsluna sína um dvöl sína á landinu klukkan tíu í kvöld og dáist þar að kvöldsólarlaginu í Reykjavík en leikarinn verður á landinu út þessa viku.

Ben Stiller á Twitter. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku