Sigur á úrvalsliði Litháa

Íslenska liðið
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik lagði úrvalslið Litháen 88-75 í æfingaleik í Litháen í dag en íslenska liðið er þar í æfinga- og keppnisferð þessa dagana.
Hlynur Bæringsson skoraði 19 stig fyrir Íslenska liðið og tók 6 fráköst, Finnur Atli Magnússon skoraði 15 stig, Jón Arnór Stefánsson 14 stig og Logi Gunnarsson 13 stig.
Í fréttatilkynningu frá Körfuknattleikssambandi Íslands segir að íslenska liðið hafi átt nokkra góða kafla en í síðari hluta seinni hálfleiks hafi botninn dottið úr leik liðsins. Þó hafi sigurinn aldrei verið í hættu.
Íslenska liðið mætir landsliði Litháen á þriðjudaginn en Litháar halda svo til London þar sem þeir keppa á Ólympíuleikunum sem hefjast í næstu viku.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












