Sendiherrum Sýrlands vísað úr landi
Fyrst birt: 05.02.2012 01:06, Síðast uppfært: 05.02.2012 03:54

Stjórn Túnis tilkynnti í dag að hún hefði ákveðið að vísa sendiherra Sýrlands úr landi. Túnis viðurkenndi ekki lengur stjórn Assads, Sýrlandsforseta.
Formælandi Túnisforseta sagði að ákvörðunin hefði verið tekin eftir að sýrlenski herinn lét sprengjum rigna á borgina Homs í gærkvöld. Allt að 260 almennir borgarar eru sagðir hafa týnt lífi og hundruð særst. Stjórnvöld í Kúveit og Alsír hafa einnig tilkynnt að sendiherrum Sýrlands verði vísað úr landi. Mótmæli hafa verið við sendiráð Sýrlands vítt og breitt um heiminn. Sums staðar hefur verið ráðist inn í sendiráðsbyggingarnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







