Selur myndir af Cruise til Kaliforníu

Tom Cruisec. Mynd:Nordic Photos/AFP
Ljósmyndir af Tom Cruise, teknar af akureyrskum ljósmyndara, verða birtar í slúðurblaði í Kaliforníu. Myndirnar sýna Tom Cruise á leið til vinnu með húfu á höfði og í dúnúlpu.
Myndirnar tók Þórhallur Jónsson, eigandi Pedromynda á Akureyri, sem sat fyrir Cruise fyrir utan Hrafnabjörg í Eyjafirði á þriðjudaginn var. Þórhallur náði góðum myndum af Cruise áður en hann hélt á tökustað við Hrossaborg á Mývatnsöræfum ásamt leikstjóra Oblivion, Joseph Kosinski.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þórhallur myndar Hollywoodstjörnu. Hann vildi ekki gefa upp söluverðmæti myndanna þegar RÚV hafði samband við hann, en sagði að sömu myndir myndu birtast í næsta eintaki tímaritsins Séð og heyrt.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













